Þverholt - Mosfellsbær

Laugardagskaffi í Mosó

Laugardaginn 10. desember verður haldið opið hús í Þverholtinu frá kl. 11 til kl. 13.
Anna Sigríður bæjarfulltrúi fer yfir helstu verkefni á borði bæjarráðs og bæjarstjórnar þessi dægrin og nefndafólk okkar segir frá helstu viðfangsefnum sinna nefnda.

Boðið verður upp á heitt súkkulaði með rjóma og smákökur í takti við árstíðina.