Íþróttafélagið Leiknir, Austurberg 111 Reykjavík

Breiðholt: Opinn fundur um heilbrigðismál með verkalýðsmálaráði Samfylkingar

Opinn fundur um heilbrigðismál í Leiknissalnum í Breiðholti! Fundurinn verður miðvikudaginn 26. apríl og hefst kl. 17:00 en umræður um heilbrigðismál eru á dagskrá kl. 18:00. Öllum er velkomið að koma með og taka þátt.

Verkalýðsmálaráð Samfylkingarinnar stendur fyrir fundinum í tengslum við 45. þing Alþýðusambands Íslands sem fer fram í Reykjavík dagana 27. og 28. apríl. Athugið að fundurinn hefst kl. 17:00 á umræðum um húsnæðismál en kl. 18:00 eru heilbrigðismálin á dagskrá.

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Anna Sigrún Baldursdóttir sem er formaður stýrihóps flokksins um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu.

Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið

* * *

Samfylkingin stendur nú fyrir samræðum um heilbrigðismálum um land allt. Málefnastarf flokksins er með nýju sniði og heilbrigðismálin verða í forgrunni frá mars og fram á haust 2023. Vinnan hefst með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu. Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu auk forystufólks flokksins, bæði á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar leggur þunga áherslu á málefnastarfið og bindur miklar vonir við vinnuna sem nú er að hefjast: „Útkoman á að vera verklýsing fyrir næstu ríkisstjórn; forgangsröðun og skýr pólitík; verkefnalisti frá fyrstu 100 dögunum og upp í fyrstu tvö kjörtímabilin í ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar,“ sagði Kristrún í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi í vor.

Mætum til leiks!