Samfylkingin í Hafnarfirði, Strandgata 43

Hafnarfjörður: Opinn fundur um heilbrigðismál

Opinn fundur um heilbrigðismál í Samfylkingarsalnum að Strandgötu 43 í Hafnarfirði! Fundurinn verður 18. apríl kl. 19:30. Öllum er velkomið að koma með og taka þátt.

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður ásamt Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Suðvesturkjördæmis. Fulltrúar úr stýrihópi flokksins um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu verða Anna Sigrún Baldursdóttir og Guðný Birna Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.

Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið 

* * *

Samfylkingin stendur nú fyrir samræðum um heilbrigðismálum um land allt. Málefnastarf flokksins er með nýju sniði og heilbrigðismálin verða í forgrunni frá mars og fram á haust 2023. Vinnan hefst með hátt í fjörutíu opnum fundum með fólkinu í landinu. Á hverjum fundi verða fulltrúar úr stýrihópi Samfylkingarinnar um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu auk forystufólks flokksins, bæði á Alþingi og í sveitarstjórnum.

Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar leggur þunga áherslu á málefnastarfið og bindur miklar vonir við vinnuna sem nú er að hefjast: „Útkoman á að vera verklýsing fyrir næstu ríkisstjórn; forgangsröðun og skýr pólitík; verkefnalisti frá fyrstu 100 dögunum og upp í fyrstu tvö kjörtímabilin í ríkisstjórn undir forystu Samfylkingarinnar,“ sagði Kristrún í ræðu sinni á flokksstjórnarfundi í vor.

Mætum til leiks!