Þverholt 3

Mosfellsbær: Opinn fundur um heilbrigðismál

Opinn fundur um heilbrigðismál í Samfylkingarsalnum að Þverholti 3 í Mosfellsbæ! Fundurinn verður þriðjudaginn 23. maí kl. 17:00. Öllum er velkomið að koma með og taka þátt.

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður Suðvesturkjördæmis. Fulltrúi úr stýrihópi flokksins um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu verður Anna Sigrún Baldursdóttir.

Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið.