Eyravegi 15

Selfoss: Opinn fundur um heilbrigðismál

Opinn fundur um heilbrigðismál í Samfylkingarsalnum á Eyravegi 15 á Selfossi! Fundurinn verður fimmtudaginn 25. apríl kl. 17:00. Öllum er velkomið að koma með og taka þátt.

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Oddný Harðardóttir þingmaður Suðurkjördæmis. Fulltrúi úr stýrihópi flokksins um heilbrigðismál og öldrunarþjónustu verður Guðný Birna Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ.

Ert þú með sérþekkingu í heilbrigðismálum eða reynslu af gólfinu? Eða ertu almennur borgari sem vill sjá breytingar til hins betra í heilbrigðismálum á Íslandi? Þá viljum við fá þig með í samtalið.