Hallveigarstígur 1 - 101 Reykjavík

Aðalfundur Hallveigar

Boðað er til aðalfundar Hallveigar - Ungs Jafnaðarfólks í Reykjavík. Fundurinn verður haldinn föstudaginn 18. ágúst á Hallveigarstíg 1.

Dagskrá fundarins hefst kl. 18:00.

Dagskrá:
1. Fundarsetning
2. Kosning fundarstjóra og ritara
3. Skýrsla stjórnar
4. Skýrsla gjaldkera
5. Lagabreytingar
6. Umræður og afgreiðsla stjórnmálaályktunar
7. Kosning stjórnar
8. Kosning skoðunarmanna reikninga
9. Önnur mál

Framboð til stjórnar og skoðunarmanna reikninga skulu send á [email protected].

Stjórnarseta í Hallveigu er til eins árs. Stjórnin samanstendur af forseta og 4-9 meðstjórnendum. Þá er óskað eftir framboðum í tvær stöður skoðunarmanna reikninga.

Eftir fundinn stefnum við á að skála saman og gera okkur glaðan dag.