Eyrarvegur 15 - Selfoss

Laugardagskaffi á Selfossi

Samfylkingin í Árborg og nágrenni stendur fyrir opnum fundum í Samfylkingarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi kl 11:00 annan hvern laugardag fram að jólafríi. 

Næsta laugardagskaffi Samfylkingarinnar verður laugardag 21. október kl. 11:00.

Rædd verður vinna að aðgerðaáætlun Samfylkingarinnar um Vaxtarplan fyrir Ísland, sem kynnt var á fundi flokksstjórnar á Akureyri. Einnig förum við yfir stefnumótun og starfsáætlun okkar á næstu vikum.

Kaffi og meðlæti.
Fundirnir eru öllum opnir og félagsfólk er hvatt til að taka virkan þátt.