Spjallkaffi 60+ í Reykjavík
Spjallkaffi Samfylkingarinnar í Reykjavík 60+ verður á sínum stað miðvikudaginn 18. október kl. 10:00 - 12:00 í sal Samfylkingarinnar við Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
Sara Björg Sigurðardóttir, varaborgarfulltrúi og formaður Öldungaráðs Reykjavíkurborgar. Sara ræðir um búsetuform framtíðar fyrir 60+ og um fyrirbyggjandi aðgerðir varðandi einmanaleika fólks.
Hlökkum til að sjá ykkur, komum með okkar hugmyndir og langanir.
Það verður heitt á könnunni og eitthvað með því.
Verið öll velkomin!