Fundur um samgöngumál í Kópavogi
Samfylkingin í Kópavogi boðar til opins fundar um samgöngur í Kópavogi fimmtudaginn 16. nóvember kl. 20:00 í sal Siglingafélagsins Ýmis við Naustavör. Meðal umræðuefna verða, samgöngusáttmálinn, Borgarlínan, samgönguáætlun og fleira.
Gestir fundarins verða:
Ásthildur Helgadóttir, sviðsstjóri umhverfissviðs Kópavogs og stjórnarmaður í Betri samgöngum.
Þorsteinn Hermannssson, forstöðumaður þróunar hjá Betri samgöngum.
Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður og nefndarmaður í Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis.
Allir Kópavogsbúar og aðrir velkomnir.