Súpufundur með þingmönnum
Samfylkingarfélagið í Hafnarfirði býður á súpufund með þingmönnum. Þær Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður flokksins í suðvesturkjördæmi og Dagbjört Hákonardóttir þingmaður flokksins í Reykjavík norður ætla að koma í heimsókn til okkar og spjalla um landslagið í íslenskum stjórnmálum.
Fundurinn er haldinn í Samfylkingarhúsinu í Hafnarfirði á Strandgötu 43 kl. 19:00 mánudaginn 6. nóvember.
Öll velkomin og hlökkum til að sjá ykkur!