Þverholt 3

Laugardagskaffi með Önnu Sigríði

Opið hús desembermánaðar verður haldið laugardaginn 2. desember í Þverholtinu kl. 11 - 13. 

Anna Sigríður bæjarfulltrúi fer yfir helstu verkefni á borði bæjarráðs og bæjarstjórnar þessi dægrin og nefndafólk segir frá helstu viðfangsefnum sinna nefnda. 

Í takti við árstíðina verður boðið upp á heitt súkkulaði, flatkökur með hangikjeti og smákökur.