Eyravegur 15 - Selfoss

Laugardagskaffi á Selfossi

Opið hús, og fyrsta laugardagskaffi ársins, Samfylkingarinnar í Árborg og nágrenni verður haldið laugardaginn 20. janúar kl. 11:00 í Samfylkingarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi. 

Félagsfólk er hvatt til að mæta og bjóða með sér gestum.

Bæjarfulltrúar í Árborg verða á fundinum, við höfum um margt að ræða í þjóðmálum og þátttöku okkar í skipulögðu málefnastarfi flokksins. Næsti kafli málefnastarfsins fjallar um atvinnu- og samgöngumál, málefni þar sem landsbyggðin öll skiptir máli.