Hallveigarstígur 1 - 101 Reykjavík

Opinn fundur með Degi B. Eggertssyni

Á nýju ári má gera ráð fyrir breytingum af mörgu tagi. Ein af þeim eru fyrirhuguð borgarstjóraskipti en samkvæmt málefnasamningi núverandi meirihluta mun Dagur B. Eggertsson láta af embætti borgarstjóra nú í janúar og oddviti Framsóknar taka við.

Samfylkingarfélagið í Reykjavík býður til félagsfundar með Degi mánudaginn 8. jan. kl. 20:00 í félagsheimili Samfylkingarinnar að Hallveigarstíg 1.

Fundarefni: Hvernig skilur Dagur við borgina og hvert stefnir borgin okkar?

Fundinum stýrir Ellen Calmon, varaborgarfulltrúi og f.v. formaður SffR.