Hver er framtíð Háskólans á Akureyri
Opinn fundur um framtíð Háskólans á Akureyri á vegum Samfylkingarinnar á Akureyri klukkan 11:00 laugardaginn 3. febrúar í sal Samfylkingarinnar, Sunnuhlíð 12 á 1. hæð - gengið inn að norðan.
Tillaga háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um sameiningu HA og Bifrastar hefur verið í deiglunni undanfarin misseri, því efnum við til umræðufundar um málið. Styrkir sameiningin háskólanám á landsbyggðinni, hver er framtíð HA?
Hér má nálgast fýsileikaskýrslu um sameiningu háskólanna tveggja.
Verið öll hjartanlega velkomin!