Strandgata 43

Kaffispjall 60+ í Hafnarfirði

Kaffispjall Samfylkingarinnar í Hafnarfirði 60+ verður á sínum stað fimmtudaginn 29. febrúar kl. 10:30 - 12:00, í sal Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Strandgötu 43. 

Oddný Harðardóttir verður gestur okkar á fundinum. Við hlökkum til að sjá ykkur og tala um málefni líðandi stundar með Oddnýju. 

Það verður heitt á könnunni og eitthvað með því. 

Verið öll hjartanlega velkomin! Stjórn Samfylkingarinnar 60+ Hafnarfirði.