Laugardagskaffi á Selfossi
Opið hús, og fyrsta laugardagskaffi ársins, Samfylkingarinnar í Árborg og nágrenni verður haldið laugardaginn 3. febrúar kl. 11:00 í Samfylkingarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi.
Félagsfólk er hvatt til að mæta og bjóða með sér gestum.
Góður vettvangur fyrir samtal, upplýsingar, hugmyndir og stefnumótun.
Kaffiveitingar að vanda og opið öllum.