Hótel Hildibrand - Neskaupstað

Neskaupstaður: Opinn fundur um atvinnu og samgöngur

Opinn fundur um atvinnu og samgöngur í Neskaupstað. Fundurinn verður á Hótel Hildibrand þriðjudaginn 20. febrúar kl. 8:00-9:00.

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson oddviti í Norðausturkjördæmi og Stefán Þór Eysteinsson formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, sem einnig er í stýrihópi flokksins um atvinnu og samgöngur.

Hvernig vilt þú sjá atvinnu og samgöngur þróast í Fjarðabyggð og á Íslandi öllu?

Við viljum fá þig með í samtalið.