Opinn fundur um atvinnu og samgöngur
Opinn fundur um atvinnu og samgöngur í Samfylkingarsalnum í Stillholti 16-18 á Akranesi. Fundurinn verður miðvikudaginn 7. febrúar kl. 17:00.
Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og Kristján Þórður Snæbjarnarson, fulltrúi úr stýrihópi flokksins um atvinnu og samgöngur. Öllum er velkomið að koma og taka þátt í samtalinu.
Hvernig vilt þú sjá atvinnu og samgöngur þróast á Akranesi og á Íslandi öllu?
Við viljum fá þig með í samtalið.