Salur AFLs í Fróðleismolanum - Búðareyri 1

Reyðarfjörður: Opinn fundur um atvinnu og samgöngur

Opinn súpufundur um atvinnu og samgöngur á Reyðarfirði. Fundurinn verður þriðjudaginn 20. febrúar kl. 12:00-13:00 í sal AFLs starfsgreinafélags í Fróðleiksmolanum (Búðareyri 1).

Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Logi Einarsson oddviti í Norðausturkjördæmi og Stefán Þór Eysteinsson formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, sem einnig er í stýrihópi flokksins um atvinnu og samgöngur.

Hvernig vilt þú sjá atvinnu og samgöngur þróast í Fjarðabyggð og á Íslandi öllu?

Við viljum fá þig með í samtalið.