Hallveigarstígur 1 - 101 Reykjavík

Spjallkaffi 60+ í Reykjavík

Spjallkaffi Samfylkingarinnar í Reykjavík 60+ verður miðvikudaginn 7. febrúar kl. 10:00 - 12:00 í sal Samfylkingarinnar Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.

Gestur okkar að þessu sinni er Júlíus Sólnes, fyrrverandi prófessor og fyrsti umhverfisráðherra Íslands.
Hann hefur nýlega sent frá sér bók um loftslagsmál, “Climate Change - Cause, Consequences, Mitigation”.

Það verður heitt á könnunni og eitthvað með því. 

Verið öll velkomin!