Eyravegur 15

Aðalfundur í Árborg

Aðalfundur Samfylkingarinnar í Árborg og nágrenni er boðaður laugardag 23. mars kl 11:00 í Samfylkingarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi

Á dagskrá eru aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins:

•    Skýrsla stjórnar flutt og lögð fram til umræðu og samþykktar.

•    Reikningar félagsins lagðir fram til umræðu og samþykktar.

•    Skýrslur nefnda sem starfa á vegum félagsins.

•    Breytingar á samþykktum félagsins bornar upp til umræðu og samþykktar. (Engar breytingar hafa verið boðaðar)

•    Kosning stjórnar, formanns og fjögurra aðalmanna og tveggja til vara.

•    Kosning þriggja manna í skoðunarnefnd, skv. lögum Samfykingarinnar 

•    Ákvörðun félagsgjalds.

•    Önnur mál. 

Léttur hádegisverður, súpa og meðlæti.

Félagsfólk er hvatt til að mæta og taka þátt.