Opinn súpufundur Rósarinnar og Alþýðuflokksfélagsins
Rósin og Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur standa fyrir opnum súpufundi fyrir allt jafnaðarfólk, laugardaginn 2.mars klukkan 12:00 á Kastalakaffi í húsakynnum Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut 72.
Innflytjendur á Íslandi og stefna Samfylkingarinnar í málaflokknum, er sú stefna að breytast? Guðmundur Árni Stefánsson, varaformaður Samfylkingarinnar, situr fyrir svörum um málaflokkinn og annað sem brennur á gestum. Fundarstjóri er Kristín Erna Arnardóttir.
Kaffi og te í boði og hægt að kaupa súpu og brauð fyrir 990 kr. á staðnum.
Hlökkum til að sjá ykkur!