Fjarfundir málefnanefnda
Dagana 28.-30. maí verða vinnufundir málefnanefnda haldnir í gegnum Zoom og gefst þar félögum út um allt land tækifæri á að taka þátt við að móta stefnu Samfylkingarinnar.
Á fundunum í maí munum við skoða stefnu Samfylkingarinnar og safna athugasemdum frá flokksfélögum um hvað við teljum nauðsynlegt að uppfæra og endurskoða. Öllum athugasemdum verður safnað saman og þær nýttar við endurskoðun á stefnunni. Drög að uppfærðri stefnu verður svo kynnt á vinnufundi málefnanefnda í ágúst áður en nefndin sendir vinnuna frá sér til stjórnar. Stjórn sendir svo tillögurnar á aðildarfélögin sem hafa tækifæri til að rýna tillögurnar sem verða að lokum lagðar fyrir og afgreiddar á landsfundi.
Hér er að finna dagskrá nefndanna dagana 28. - 30. maí og skráningarblað.
28. maí
Kl. 17 - 19 - Efnahags- og atvinnumál
Kl. 20 - 22 - Mennta- og menningarmál
29. maí
Kl. 17 - 19 - Alþjóðamál
kl. 20 - 22 - Stjórnarfar og mannréttindi
30. maí
Kl. 17 - 19 - Loftslags- og umhverfismál
Kl. 20 - 22 - Velferðarmál
Við hvetjum öll til að taka þátt í að þróa stefnu flokksins.
Fjarfundahlekkir verða sendir á alla skráða fyrir fundina.