Spjall við formann
Samfylkingarfélögin í Kraganum standa fyrir kvöldfundi í Kópavogi með Kristrúnu Frostadóttur formanni Samfylkingarinnar. Þar gefst flokksfélögum kostur á að ræða beint við Kristrúnu um gang mála í Samfylkingunni – svo sem áherslur og útspil flokksins, málefnavinnu, þingstörf eða hvaðeina sem brennur á flokksfólki í Kraganum.
Fundurinn verður haldinn í sal Siglingaklúbbsins Ýmis að Naustavör 14 í Kópavogi kl. 20:00 þriðjudaginn 28. maí.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.
Stjórn kjördæmisráðs XS í Suðvesturkjördæmi.