Jóhann Páll býður til samtals á Alþingi um örorkufrumvarp ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður Samfylkingarinnar býður öryrkjum Íslands til samtals á Alþingi um örorkufrumvarp ríkisstjórnarinnar.
Verið hjartanlega velkomin þriðjudaginn 11. júní kl. 9:30 í nýbyggingu Alþingis (Smiðju). Gengið er inn um norðurinngang Smiðju sem snýr að Alþingishúsinu og Austurvelli. Boðið verður upp á kaffi og kruðerí og gert er ráð fyrir að fundurinn standi til kl. 11:00 eða þar um bil.
Fundargestir eru beðnir að skrá sig á fundinn hér: https://forms.gle/5FSHCkusMd4ucfGB6
Frumvarp ríkisstjórnarinnar til breytinga á örorkulífeyriskerfinu var lagt fram af félagsmálaráðherra á Alþingi í vor. Nú stefnir ríkisstjórnin að því að afgreiða málið með hraði fyrir þinglok um miðjan júní.
Jóhann Páll hefur skrifað um stórhættulega ágalla á frumvarpinu sem hann telur brýnt að lagfæra. Þetta má meðal annars lesa um í grein á Vísi: https://www.visir.is/.../stor-haettu-legir-a-gallar-a...
„Ég hef átt góð samtöl við forystu og sérfræðinga ÖBÍ og Þroskahjálpar um þetta mál – en ég tel að skort hafi á raunverulegt samráð hjá ríkisstjórninni við vinnslu frumvarpsins,“ segir Jóhann Páll sem er fulltrúi Samfylkingar í velferðarnefnd Alþingis og formaður í stýrihópi flokksins um húsnæðis- og kjaramál.
„Nú megum við engan tíma missa og því vil ég boða hinn almenna öryrkja til Alþingis til samtals. Samfylkingin mun í kjölfarið leggja fram breytingartillögur við örorkufrumvarpið.“
Sjáumst í baráttunni!