Akureyri: Morgunfundur um húsnæði og kjaramál
Verið öll velkomin í Samfylkingarsalinn í Sunnuhlíð 12 á Akureyri fimmtuudaginn 5. september kl. 9:00. Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar og þingmennirnir Logi Einarsson, Þórunn Sveinbjarnardóttir og Jóhann Páll Jóhannsson, sem er einnig formaður í stýrihópi flokksins um húsnæði og kjaramál.
Hvaða breytingar vilt þú í húsnæðis- og kjaramálum á Íslandi? Við viljum fá þig með í samtalið
* * *
Samfylkingin stendur fyrir samtali um húsnæði og kjaramál um land allt. Málefnastarf flokksins er nú með nýju sniði – heilbrigðismálin voru í forgrunni í fyrra, svo atvinna og samgöngur síðasta vetur og loks er komið að húsnæði og kjaramálum.
Fundirnir eru hugsaðir til að gefa fólki um land allt kost á að taka þátt í málefnastarfi Samfylkingar og leggja grunn að áherslum og forgangsröðun flokksins í veigamestu málaflokkum. Afraksturinn verður kynntur í væntanlegu útspili um húsnæði og kjaramál nú í haust.
* * *
Hér eru hlekkir á nýleg útspil Samfylkingar:
Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum – https://bit.ly/3y7dFPm
Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – https://bit.ly/3UE77zJ
Og hér má finna upplýsingar um næstu fundi: www.facebook.com/samfylkingin/events