Höfn: Súpufundur um húsnæði og kjaramál
Verið öll velkomin á Kaffi Hornið á Höfn föstudaginn 6. september kl. 12:00. Boðið verður upp á rjúkandi og ljúffenga súpu. Á meðal gesta verða Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar, Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir formaður AFLs starfsgreinafélags Austurlands og Jóhann Páll Jóhannsson þingmaður. Þau tvö síðastnefndu eru fulltrúar í stýrihópi Samfylkingar um húsnæði og kjaramál.
Hvaða breytingar vilt þú í húsnæðis- og kjaramálum á Íslandi? Við viljum fá þig með í samtalið
* * *
Samfylkingin stendur fyrir samtali um húsnæði og kjaramál um land allt. Málefnastarf flokksins er nú með nýju sniði – heilbrigðismálin voru í forgrunni í fyrra, svo atvinna og samgöngur síðasta vetur og loks er komið að húsnæði og kjaramálum.
Fundirnir eru hugsaðir til að gefa fólki um land allt kost á að taka þátt í málefnastarfi Samfylkingar og leggja grunn að áherslum og forgangsröðun flokksins í veigamestu málaflokkum. Afraksturinn verður kynntur í væntanlegu útspili um húsnæði og kjaramál nú í haust.
* * *
Hér eru hlekkir á nýleg útspil Samfylkingar:
Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum – https://bit.ly/3y7dFPm
Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum – https://bit.ly/3UE77zJ
Og hér má finna upplýsingar um næstu fundi: www.facebook.com/samfylkingin/events