Þverholti 3

Laugardagskaffi í Mosó

Nú færist haustið yfir með sínum verkefnum. Fyrsta opna hús haustsins hjá Samfylkingunni í Mosfellsbæ verður haldið laugardaginn 7. september í Þverholtinu kl. 11 - 13. 

Anna Sigríður bæjarfulltrúi fer yfir helstu verkefni á borði bæjarráðs og bæjarstjórnar þessi dægrin og nefndafólk segir frá helstu viðfangsefnum sinna nefnda. 

Kíkið endilega í gott spjall um bæjarmálin, kaffi og með því 😊.

Öll velkomin!