Sunnuhlíð 12

Akureyri: Félagsfundur um stefnudrög

Samfylkingarfélagið á Akureyri verður með fund um stefnudrög Samfylkingarinnar fimmtudaginn 10. október kl. 20:00. 

Dagskrá: 

  • Kynning á stefnudrögum
  • Val á landsfundarfulltrúum
  • Önnur mál

    Á fundinum gefst ykkur tækifæri til að koma með breytingatillögur sem félagsfundurinn kýs svo um. Hljóti tillögur meirihluta á fundinum verða þær sendar til stjórnar og verða til umræðu og afgreiðslu á landsfundi. Tillögur sem ekki hljóta meirihluta á fundinum geta einstaklingar sent frá sér í eigin nafni til stjórnar, eigi síðar en 17. október kl. 23.59.

    Aðeins tillögur sem berast fyrir þennan tíma, 17. okt. kl. 23.59, verða til umfjöllunar á landsfundi. Ekki verður hægt að bera upp nýjar tillögur í málefnanefndum á landsfundi. 

    Vinsamlegast notið sniðmátið sem fylgir með þessum tölvupósti til að senda inn breytingatillögur.

    Tillögurnar sem félagsfundurinn samþykkir verða svo birtar á heimasíðunni þar sem öllum gefst tækifæri til að kynna sér þær fyrir landsfundinn. 
     
  • Stefnudrögin.
  • Sniðmát fyrir breytingatillögur. 
  • NÝTT verklag á málefnastarfi á landsfundi 2024.

Landsfundur Samfylkingarinnar verður haldinn dagana 15. & 16. nóv. á Hilton Reykjavík Nordica. Framundan er spennandi kosningavetur og hvetjum við alla til að mæta og taka þátt á þessum viðburði sem jafnframt er æðsta vald flokksins. Við hvetjum alla áhugasama til að gefa kost á sér sem fulltrúar félagsins á landsfundinum.

Skráning landsfundarfulltrúa: https://forms.gle/gPAqXkfifJdDeveL6