Eyravegur 15, Selfoss

Árborg - undirbúningur fyrir landsfund

Öll velkomin!

Samfylkingin í Árborg og nágrenni boðar til tveggja félagsfunda í aðdraganda landsfundar.  

Fundirnir verða haldnir í Samfylkingarsalnum að Eyravegi 15 á Selfossi miðvikudagskvöldin 9. og 16. október og hefjast þeir báðir kl 20:00.
 
Fundarefni beggja funda er undirbúningur fyrir landsfund og umræður um stefnudrög og tillögur fyrir landsfund. Á seinni fundinum verður borið upp til samþykktar val okkar á landsfundarfulltrúum.

Á fundunum gefst ykkur tækifæri til að koma með breytingatillögur sem félagsfundurinn kýs svo um. Hljóti tillögur meirihluta verða þær sendar til stjórnar og teknar til umræðu og afgreiðslu á landsfundi. Tillögur sem ekki hljóta meirihluta á fundinum geta einstaklingar sent frá sér í eigin nafni til stjórnar, eigi síðar en 17. október kl. 23.59.

Aðeins tillögur sem berast fyrir þennan tíma, 17. okt. kl. 23.59, verða til umfjöllunar á landsfundi. Ekki verður hægt að bera upp nýjar tillögur í málefnanefndum á landsfundi. 

Vinsamlegast notið sniðmátið sem fylgir með þessum tölvupósti til að senda inn breytingatillögur á [email protected] eða með skilboðum á facebook.

Tillögurnar sem félagsfundurinn samþykkir verða svo birtar á heimasíðunni þar sem öllum gefst tækifæri til að kynna sér þær fyrir landsfundinn. 

  1. Stefnudrögin.
  2. Sniðmát fyrir breytingatillögur. 
  3. NÝTT verklag á málefnastarfi á landsfundi 2024.