Hlíðarsmára 9

Kópavogur: Félagsfundur um stefnudrög

Samfylkingarfélagið Í Kópavogi verður með fund um stefnudrög Samfylkingarinnar þriðjudaginn 8. október kl. 20:00. 

Á fundinum gefst ykkur tækifæri til að koma með breytingatillögur sem félagsfundurinn kýs svo um. Hljóti tillögur meirihluta á fundinum verða þær sendar til stjórnar og verða til umræðu og afgreiðslu á landsfundi. Tillögur sem ekki hljóta meirihluta á fundinum geta einstaklingar sent frá sér í eigin nafni til stjórnar, eigi síðar en 17. október kl. 23.59.

Aðeins tillögur sem berast fyrir þennan tíma, 17. okt. kl. 23.59, verða til umfjöllunar á landsfundi. Ekki verður hægt að bera upp nýjar tillögur í málefnanefndum á landsfundi. 

Vinsamlegast notið sniðmátið sem fylgir með þessum tölvupósti til að senda inn breytingatillögur.

Tillögurnar sem félagsfundurinn samþykkir verða svo birtar á heimasíðunni þar sem öllum gefst tækifæri til að kynna sér þær fyrir landsfundinn. 
 

  1. Stefnudrögin.
  2. Sniðmát fyrir breytingatillögur.