Kaffifundur á Ólafsfirði
Samfylkingin býður til opins fundar á Kaffi Klöru miðvikudaginn 20. nóvember kl 17:00.
Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar þau Logi Einarsson, Sæunn Gísladóttir og Sindri S. Kristjánsson taka á móti gestum og ræða málefnin fyrir komandi kosningar.
Við viljum endilega hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk á svæðinu máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar.
Allir velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur!