Kvennagleði Samfó
Samfylkingin býður þér upp á sannkallað gleðikvöld þegar jafnaðarkonur hittast á kvenna- og kvárakvöldi fimmtudaginn 21. nóvember klukkan 20:00 á hinni glæsilegu Petersen svítu. Þetta verður kvöld fullt af gleði, samstöðu og orku.
Við hefjum kvöldið á ljúffengum rauðum fordrykk og fáum svo að njóta skemmtidagskrár sem enginn ætti að missa af. Uppistandarinn Nadia fær þig til að kikna í hnjánum af hlátri. Plötusnúðurinn og Reykjavíkurdóttirin Ragga Holm framreiðir tónlist sem lætur hjörtun slá hraðar og fæturna til að dansa.
Njóttu kvöldsins með okkur og taktu vinkonuna með þér! Þetta er frábært tækifæri til að þétta raðirnar, gleðjast saman og safna orku fyrir kosningabaráttuna sem er fram undan
Við hlökkum til að sjá þig – fjölmennum og skálum saman.