Eyravegur 15, Selfoss

Laugardagskaffi - Samfylkingin í Suðurkjördæmi

Öll velkomin

Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður á opinn kaffifund að Eyravegi 15, Selfossi laugardaginn 2. nóvember, húsið opnar klukkan 10:00.

Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar, þau Víðir Reynisson, Ása Berglind Hjálmarsdóttir og Arna Ír Gunnarsdóttir, taka á móti gestum og ræða málefni dagsins.

Þau vilja hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar fyrir komandi Alþingiskosningar.

Þessi viðburður er kjörið tækifæri fyrir íbúa Suðurkjördæmis til að kynnast frambjóðendunum og þeim stefnumálum sem Samfylkingin hefur lagt mikla vinnu í á undanförnum tveimur árum.

Lögð verður áhersla á málefni sem snerta líf og framtíð fólks í Suðurkjördæmi og hvernig Samfylkingin hyggst vinna að sterkari, sjálfbærari og sanngjarnari framtíð fyrir landið allt.

Kíktu í kaffi og taktu samtalið!