Safnaðarheimilið, Reyðarfirði

Opinn fundur á Reyðarfirði

Samfylkingin býður til opins fundar í Safnaðarheimilinu á Reyðarfirði miðvikudaginn 13. nóvember kl. 17.

Boðið verður upp á kaffi og með því.

Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar þau Eydís Ásbjörnsdóttir, Stefán Þór Eysteinsson og Ásdís Helga Jóhannsdóttir taka á móti gestum og ræða málefnin fyrir komandi kosningar.

Við viljum endilega hitta sem flest, heyra hvað skiptir fólk á svæðinu máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar.

Öll velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur!