Herðubreið - Gallerí

Opinn fundur á Seyðisfirði

Samfylkingin býður til opins fundar í Galleríinu í Herðubreið á Seyðisfirði föstudaginn 22. nóvember kl 16.

Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar þau Logi Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir taka á móti gestum og ræða málefnin fyrir komandi kosningar.

Við viljum endilega hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk á svæðinu máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar.

Allir velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur!