Papas pizza

Opinn fundur í Grindavík

Samfylkingin í Suðurkjördæmi ásamt Kristrúnu Frostadóttur, formanni Samfylkingarinnar, bjóða íbúum í og frá Grindavík til opins fundar.

Á fundinum verður farið yfir hin þrjú áherslumál Samfylkingarinnar fyrir komandi alþingiskosningar:

- Framkvæmdaplan í húsnæðis- og kjaramálum
- Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum
- Örugg skref í heilbrigðis- og öldrunarmálum

Önnur málefni verða einnig opin til umræðu. Í kjölfarið verður íbúum boðið að spyrja frambjóðendurna ásamt Kristrúnu spurninga.

Við hvetjum alla, sama þó að þið séuð ákveðin eða óákveðin, að koma og taka þátt í mikilvægu samtali.

Þín þátttaka skiptir máli!