Tryggvaskáli, Selfoss

Pub Quiz með Sverri Bergmann

Samfylkingin í Suðurkjördæmi býður í Pub Quiz í Tryggvaskála á Selfossi, föstudaginn 22. nóvember kl. 20:00.

Spyrill kvöldsins er enginn annar en Sverrir Bergmann og byrjar hann að kasta fram spurningum á slaginu 20:30. Tómas Jónsson aðstoðar Sverri í tónlistartengdum spurningum!

Miðum við 2-3 einstaklinga í hverju liði, bæði hægt að koma sem lið eða ganga í lið á staðnum

Kíktu við, taktu vini þína með, og eigum saman skemmtilegt kvöld. Öll sem vilja taka þátt eru velkomin!

Hlökkum til að sjá ykkur!