PubQuiz á Götubarnum

Samfylkingin í Norðausturkjördæmi og Ungt jafnaðarfólk á Akureyri bjóða í PubQuiz á Götubarnum föstudaginn 22. nóvember kl. 20:00.
Spyrlar kvöldsins eru engin önnur en Sindri og Hilda Jana og þau byrja að kasta fram spurningum á slaginu 20:30.
Miðum við 2-3 einstaklinga í hverju liði, bæði hægt að koma sem lið eða ganga í lið á staðnum.
Veigar í boði meðan birgðir endast.
Kíktu við, taktu vini þína með, og eigum saman skemmtilegt kvöld. Öll sem vilja taka þátt eru velkomin!
Hlökkum til að sjá ykkur!