Skemmtikvöld í Mosfellsbæ
Samfylkingin í Mosfellsbæ verður með skemmtikvöld 20. nóvember kl. 19:30 að Þverholti 3, Mosfellsbæ.
Frambjóðendur verða á svæðinu til skrafs og ráðagerða.
Guðmundur Andri Thorsson les úr nýrri bók sinni Synir himnasmiðs og músíkalskur leynigestur lítur við.
Bjór, rautt og léttar veitingar.
Öll velkomin.