Spjallkaffi 60+ í Reykjavík

Spjallkaffi Samfylkingarinnar í Reykjavík 60+ verður á sínum stað miðvikudaginn 13. nóvember kl. 10:00 - 12:00 í sal Samfylkingarinnar Hallveigarstíg 1, 101 Reykjavík.
Gestur okkar verður Dagur B. Eggertsson fv. borgarstjóri og frambjóðandi í Reykjavík norður.
Á fyrri hluta fundarins kemur Jónas Már Torfason, sjálfboðaliðastjóri Samfylkingarinnar, til skrafs og ráðagerða.
Það verður heitt á könnunni og eitthvað með því.
Verið öll velkomin!