Súpufundur á Djúpavogi

Samfylkingin býður til opins súpufundar í hádeginu miðvikudaginn 13. nóvember í Tryggvabúð á Djúpavogi.
Boðið verður upp á rjúkandi og ljúfenga kjötsúpu.
Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar þau Eydís Ásbjörnsdóttir og Stefán Þór Eysteinsson taka á móti gestum og ræða málefnin fyrir komandi kosningar.
Við viljum endilega hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk á svæðinu máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar.
Öll velkomin og við hlökkum til að sjá ykkur!