Hótel Tangi, Vopnafjörður

Súpufundur á Vopnafirði

Samfylkingin býður til opins súpufundar í hádeginu fimmtudaginn 21. nóvember, kl. 12:00 á Hótel Tanga á Vopnafirði.

Boðið verður upp á rjúkandi og ljúffenga súpu, brauð og kaffi.

Á fundinum munu frambjóðendur Samfylkingarinnar þau Logi Einarsson og Eydís Ásbjörnsdóttir taka á móti gestum og ræða málefnin fyrir komandi kosningar.

Við viljum endilega hitta sem flesta, heyra hvað skiptir fólk á svæðinu máli og kynna helstu áherslur Samfylkingarinnar.

Allir velkomnir og við hlökkum til að sjá ykkur!