Opinn fundur með Kristrúnu og Loga

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í Neskaupstað. Verið velkomin í félagsheimilið Egilsbúð fimmtudaginn 22. maí kl. 17:00. Þar verða einnig þingmenn Samfylkingar í Norðausturkjördæmi, Eydís Ásbjörnsdóttir og Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
Hvað brennur á þér? Hvernig gerum við Ísland betra? Hvað er framundan hjá ríkisstjórninni?
Tökum opið samtal. Beint og milliliðalaust. Kaffi og kruðerí.
Sjáumst í Neskaupstað!