25 ára afmæli UJ
Ungt jafnaðarfólk kynnir með stolti 25 ára afmæli UJ.
Hreyfingin var stofnuð þann 11. mars árið 2000 í Iðnó. Í tilefni þess ætlum við að fagna afmælinu 14. mars nk. í Iðnó. Veislan hefst klukkan 20:00.
Skráning er hafin og fer fram hér: https://forms.gle/XbJC2Fnmu2XcCjoX9
Almennt verð er 3.500 kr. en verð fyrir virka UJ-ara er 2.000 kr.
Við hvetjum öll sem hafa tekið þátt í starfi hreyfingarinnar til þess að skrá sig, sem og allt jafnaðarfólk sem vill fagna þessum merku tímamótum með okkur.
Spurningum skal beint til Lilju Hrannar Önnudóttur Hrannarsdóttur, forseta Ungs jafnaðarfólks í tölvupósti [email protected]