Þverholt 3, Mosfellsbær

Opinn fundur með heilbrigðisráðherra

Bæjarmálin og heilbrigðismálin verða rædd í laugardagskaffinu þann 1. mars í Þverholti 3, kl. 10 - 12.

Anna Sigríður Guðnadóttir bæjarfulltrúi ræðir helstu viðfangsefni á vettvangi bæjarráðs og bæjarstjórnar kl. 10-11.

Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra, fer yfir málin við upphaf nýs kjörtímabils og verður til skrafs og ráðgerða kl. 11-12.

Öll velkomin í gott spjall, kaffi og með því.