Opinn fundur með Kristrúnu á Eyrarbakka

Opinn fundur með Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra á Eyrarbakka. Verið velkomin í samkomuhúsið Stað þriðjudaginn 25. mars kl. 17:30. Þar verða einnig þingmenn Samfylkingar í Suðurkjördæmi, Víðir Reynisson og Ása Berglind Hjálmarsdóttir.
Hvað brennur á þér? Hvernig gerum við Ísland betra? Hvað er framundan hjá nýrri ríkisstjórn?
Tökum opið samtal. Beint og milliliðalaust. Kaffi og kruðerí.
Sjáumst á Eyrarbakka.