Landsfundur 2025

Landsfundur verður haldinn dagana 11. & 12. apríl.

Allir félagar í Samfylkingunni jafnaðarflokki Íslands eiga sæti á landsfundum með málfrelsi og tillögurétti.

Við hvetjum öll til að mæta og taka þátt á þessum viðburði sem jafnframt er æðsta vald flokksins.

Aðeins tillögur sem berast fyrir, 14. mars kl. 23.59, verða til umfjöllunar á landsfundi. Ekki verður hægt að bera upp nýjar tillögur í málefnanefndum á landsfundi. 

  1. Stefnudrögin.
  2. Sniðmát fyrir breytingatillögur. 
  3. NÝTT verklag á málefnastarfi á landsfundi 2025.

Mikilvægar dagsetningar framundan
25. feb. - Lokafrestur til að krefjast allsherjaratkvæðagreiðslu í formannskjöri (6.01)

14. mars - Tillögur að ályktunum frá aðildarfélögum og einstökum félagsmönnum skulu berast framkvæmdastjórn minnst 4 vikum fyrir upphaf landsfundar.

4. apríl - Framboð til formanns skulu berast framkvæmdastjórn skriflega eigi síðar en einni viku fyrir upphaf landsfundar (komi ekki til allsherjaratkvæðisgreiðslu)

11. og 12. apríl - Landsfundur haldinn