Málstofa um jafnlaunavottun

Verkalýðsmálaráð í samstarfi við Kvennahreyfingu Samfylkingarinnar boða til málstofu um jafnlaunavottun þriðjudaginn 27. maí kl. 16:30 á Hallveigarstíg 1 - 101 Reykjavík.
Gestir fundarins Martha Lilja Olsen, framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu, og Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, ræða jafnlaunavottun við gesti.
Fundarstjóri verður Gylfi Þór Gíslason, formaður Verkalýðsmálaráðs.