Aðalfundur Fulltrúaráðs Reykjavíkur

Aðalfundur Fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík verður haldinn á Kastalakaffi, Suðurlandsbraut 72, mánudaginn 22. september kl. 17:00 - 18:30
Á fundinum er kosið í stjórn FSR, aðeins fulltrúaráð hefur atkvæðisrétt. Aðalfundur FSR er opinn öllum félögum í Reykjavík með málfrelsi og tillögurétt. Atkvæðisrétt á fundum fulltrúaráðsins eiga eingöngu kjörnir fulltrúar ráðsins.
Ennþá er hægt að gefa kost á sér í embætti, frestur er fram að fundi 22. september til kl. 17:15. Eftirfarandi hafa gefið kost á sér til kjörs.
Formaður:
Björk Vilhelmsdóttir
Gjaldkeri:
Lilja Hrönn Önnudóttir Hrannarsdóttir
Sigfús Ómar Höskuldsson
Meðstjórnendur:
Ármann Leifsson
Ásgeir Beinteinsson
Bjarni Jónsson
Bjarni Þór Sigurðsson
Bjarnveig Birta Bjarnadóttir
Halla B. Þorkellsson
Hörður Oddfríðarson
Jón Daníelsson
Kristín Erna Arnardóttir
Nichole Leigh Mosty
Sigfús Ómar Höskuldsson
Starri Reynisson
Stefán Benediktsson
Teitur Atlason
Viðar Eggertsson
Kosið verður með kjörseðlum inni á fundinum sjálfum. Kjörstjórn skipa Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, formaður, Aðalheiður Frantzdóttir og Stein Olav Romslo.
Vakni upp einhverjar spurningar varðandi framboð eða kosningar er hægt að hafa samband við formann kjörstjórnar í síma 895 0272.
Dagskrá
1. Skýrsla framkvæmdastjórnar
2. Ársreikningar og árshlutareikningur þess árs sem aðalfundur er haldinn
3. Skýrslur aðildarfélaga
4. Skýrslur þingsveitar og borgarstjórnarflokks
5. Lagabreytingar
6. Kjör framkvæmdastjórnar
a. Kjör formanns
b. Kjör gjaldkera
c. Kjör þriggja aðalmanna og fimm varamanna
7. Kjör félagslegra skoðunarmanna
8. Önnur mál: Tillaga stjórnar FSR um fulltrúa í Flokksstjórn
Fundarstjóri: Gunnar Alexander Ólafsson